Færsluflokkur: Evrópumál

Á hvaða leið erum við eiginlega

Allt virðist þetta stefna í einu og sömu áttina. Ekkert að því sem að sagt var um Co_vid og bólusetningar með þessum líka frábæru bóluefnum stendur - heldur er það á verulega fallvöltum fótum. BLEKKINGAR OG AFTUR BLEKKINGAR og almenningur gengur í stríðum straumum í átt að feigðarósi. 

Þetta er mín upplifun og niðurstaða, þar sem að ekkert af þessum íþyngjandi aðgerðum á skerðingu frelsis almennings og sem eru í bága við skjalfest mannréttindi, virðast vera rökréttar. Það er eins og það sé verið smám saman að venja okkur við skerðingarnar, loforð um að þeim verði aflétt eru skammvin og má segja í mýflugumynd. Óttastjórnunin er allgjör og hamrað með sleggjunni stanslaust. 

Þetta hræðir mig mikið meira en Kó-róna-veiran. Í öllum fréttatímum eru fréttir af smitum og vandræðum heilbrigðisstéttanna. En þau vanræði eru meira fráflæðisvandi, frekar en drepsóttin Covid, sem er ekki nein alvöru drepsótt, því að stærsti hluti smitaðrar verða lítið eða ekkert veikir. Vissulega veikjast sumir alvarlega, en alls ekki nógu margir til að hægt sé að réttlæta þessar aðgerðir sem hafa lamandi áhrif á allt mannlíf og rekstur fyrirtækja. Við þetta verður ekki unað og það er kominn tími til að við sem að sjáum þetta sem ógn við frelsi og lýðræðið förum að hafa mikið hærra en hingað til. Krefjumst þess að RUV sem við erum skylduð í sköttunum okkar til að greiða til og á að vera miðill allra landsmanna, fari að hleypa okkar röddum að líka, á því eigum við fullan rétt. 


Íþyngjandi sóttvarnarlög - en lítið að smitum

Ég velti fyrir mér stundum hvort þessar miklu takmarkanir á frelsi til athafna standist lög um mannréttindi. Nú hefur í nokkuð langan tíma verið lítið sem ekkert um innanlands smit af Covid 19 og takmarkanir á landamærum miklar, þannig að í ljósi þess ætti lífið að geta verið á mun eðlilegri nótum en nú er. 

Það að ekki megi sitja inni á veitingastað fleiri en 20 gestir og ekki megi afgreiða fólk um veitingar eftir kl. 21 finnst mér vera svo mikil forræðishyggja - að ég velti fyrir mér hvort hér sé að verða til Fasisma þjóðfélag, þar sem menn verði að hlíða, þó svo rökin sé veik eða engin. 

Það vekur mér óhug hvað fólk virðist vera lítið meðvitað um persónuréttindi fullorðinna einstaklinga, sem eiga að hafa vit á að taka sjálft upplýstar ákvarðanir og tökum því sem sjálfsögðum hlut að láta segja okkur hvenær við megum fara út að borða og eða á mannamót, þar sem að fleiri en 20 manns koma saman.

Ég sé ekki rökin fyrir því að reglur séu svona stífar núna, ef að heilbrigðisyfirvöld telja að á þessu ári 2021 verði þjóðin bólusett. Nú þegar er búið að bólusetja stærstan hluta af viðkvæmustu hópunum og því eru engin rök fyrir því að létta ekki á miklum hluta þessara takmarkanna, en nei, höldum bara áfram að taka við fyrirskipunum frá Sóttvarnarlækni og yfirvöldum.

Nú var jú verið að auka við fjölda fólks sem að má fara á leiksýningar, tónleika og í verslanir að kaupa sér ýmsan varninginn, en ennþá mega veitingahús og barir þola miklar hömlur, sem að eiga ekki við rök að styðjast, nema þá helst forræðishyggju.

Í verslunum er fólk að snerta sömu hlutina og þar er engin starfsmaður sem að hleypur á eftir fólki með sprittbrúsann, en á veitingastöðum er því öðruvísi farið. Ég tala af reynslu minna starfsmanna, sem spritta allt í bak og fyrir og vakta að gestir spritti sig, áður en þeir setjast. Matseðillinn er á netinu, þannig að menn kíkja bara í sína eigin síma. Passað er að hafa rétta fjarlægð á milli borða og reynt að fara eftir ýtrustu sóttvarnarreglum. En engu síður er okkur ekki treyst fyrir nema takmörkuðum fjölda gesta -  20 mann í einu og opnunartíma sem að sæmir ekki fullorðnu fólki, að stjórna því á þennan hátt.  Þetta er óásættanlegt. 

Svona höfðum við það í sumar sem leið, pössuðum allt til hins ýtrasta. Það er ekki við okkur að sakast að smitum fór að fjölga aftur.

Fólk gat alveg eins hafa borði milli sín smit í verslunarferðum í Smáralindinni eða Kringlunni þar sem að menn voru á ferðinni, eins og inni á veitingastöðum og því frekar, þar sem erfitt var að stjórna hvar fólk var statt inn í verslunum. 

En nú eru aðstæður betri en í sumar sem leið, en þá var ekki einu sinni tilbúið bóluefnið, en nú erum við byrjuð að bólusetja og því er komin tíminn til að að þessum íþyngjandi boðum og bönnum linni.  

Niðurlag - Tek fram að það eru aðgerðir Ríkisstjórnarinnar og Sóttvarnarlæknis innanlands sem ég er ósátt við - en ekki aðgerðir á landamærum, eins og málum er háttað í Evrópu nú. 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband